Atburđarteljari

Auglýsing

Könnun

Hvađa hundanafn finnst ţér passa best viđ hvítan golden retriever.

Smá infó um Snowflake

  • Nafn: Drífa Jónsdóttir
  • Netfang: drifajons@hotmail.com
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Ţjónn á veitingastađ í Stavanger
  • Hjúskaparstađa: Ástfangin kćrasta
  • Um mig: Hress og óţćginlega hreinskilin
  • Annađ: Ekki missa af lífinu ! It has so much to offer og ekki ljúga!!

Innskráningar kubbur

Smá fréttir frá Stavanger

07. desember 2009 klukkan 12:47

Fréttir af okkur hér í Stavanger.

Nú leikur lífið sko við okkur. Fyrir það fyrsta þá er geggjað hlýtt og hér frystir næstum aldrei... Erum alveg farin að elska það sko...

 

Í gær var Jólapartý fyrir alla sem vinna fyrir HSR. Herlige-restauranter er nafn sem nær yfir 15 veitingastaði hér í Stavanger. Það er sem sagt einn maður sem á  15 mismunandi veitingastaði frá kaffihúsum, skemmtistöðum, veitingastöðum og upp í gourme veitingastaði. Allir staðirnir eru vel virtir og ganga vel og það er alveg cool að vera með afslátt á öllum þessum stöðum og Semjon vinnur á flottasta staðnum :) en já þannig að í gær var risa partý á vinnustaðnum mínum og vitir menn Drífa var í engu stuði til að drekka. Það var frítt áfengi út um allt en ég var bara ekki í stuði og sennilega eina manneskjan á svæðinu sem var edrú haha En ok allt í góðu með það ég fór snemma heim og sofnaði upp úr miðnætti.

 

Um tvöleitið hringir Semjon og vekur mig, og svo kemur hann heim og vekur mig aftur og viti þið hvað það þýddi... Nei ég var vakandi til klukkan sjö í morgun !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Ég bara gat ekki sofnað aftur!! Ég lá í svona tvo tíma uppí rúmi og hann auðvitað “dó” um leið og hausinn lagðist á koddann. Svo eftir tvo tíma dröslaði ég mér niður og byrjaði bara að þrífa, setja í vél, lesa og bara nefndu það! En jámms loksins uppúr sjö í morgun fór ég að finna fyrir þreytu! Ég bað Semjon vinsamlegast að vekja mig ekki aftur í framtíðinni hahaha

 

En annars já í dag þá er mánudagur og það þýðir að eftir akkurat viku erum við búin að fá hvolpana afhenda :) Vá loksins fáum við Dexter og Damien heim! Og já talandi um þá tvo þá gerðum við okkur grein fyrir því að við erum ekki með neitt auka pláss fyrir tvo hunda hér heima þannig að við sögðum upp íbúðinni og erum búin að finna og fá aðra íbúð !!! :) Flytjum 15 janúar þannig að hér er allt að gerast. Bjartir hlutir framundan.

 

Svo eru jólin bara á næsta leiti, er það ekki stórkostlegt.

 

En jæja ég ætla að gera mig ready. Ætla að hitta Birnu mína klukkan fjögur og svo mæting í vinnuna klukkan sjö.

 

Endilega kvittið fyrir lesninguna og segið mér frá einhverju skemmtilegu.

 

KNÚS OG KOSSAR

 

Fyrsti í ađventu

30. nóvember 2009 klukkan 13:46

Spurning um að skrifa nýtt blogg. Héðan er allt rosa gott að frétta. Í gær var auðvitað fyrsti í aðventu og við skreyttum íbúðina, tréið og kveiktum á kerti. Ótrúlega gaman. Hér snjóar reyndar ekki þannig að það er mjög spes að það sé að koma desember og ennþá hlýtt úti.
Í gær var stelpudjamm og í hvert einasta skipti sem ég drekk þá færist ég alltaf nær og nær þeirri hugmynd um að hætta að drekka for real! Hvernig nennir fólk þessu allar helgar?? Ég er alveg búin á því eftir eitt djamm.. Maður er víst eitthvað farinn að eldast....

Annars já þá styttist í að við verðum foreldrar :) Tvær vikur í litlu hnoðboltana og spennan er í hámarki!! Fengum að hitta þá í gær og JESÚS kristur!! Ég gjörsamlega truflaðist þegar ég sá þá hlaupa um út um allt ! Ég þurfti alveg að róa mig niður áður en ég gekk inn haha. Þeir eru bara svo agalega sætir !! Það verða teknar þúsund myndir þegar við komum með þá heim :)

Við Semjon erum farin að ræða að koma til Íslands í janúar þannig að við splæsum örugglega í flug fljótlega. Búin að fá pössun á börnin og svona þannig að þetta verður ekkert mál. Bara verð að koma í heimsókn!

En jæja ég verð núna að laga smá til og svo ætla ég að baka fyrstu smákökurnar :)

Kveð í bili
Drífa

Ekki gefast upp á okkur.... NÝ KÖNNUN :D HAHA

25. nóvember 2009 klukkan 12:47
Ok við erum alveg að komast að niðurstöðu hvað varðar nöfnin á hundana okkar.

Hér er ný könnun!

Lokanöfnin eru komin og við erum nokkuð örugg að nú er þetta loksin komið hjá okkur.

KJÓSIÐ

Spurning um ađ halda ţessari síđu lifandi....

23. nóvember 2009 klukkan 16:46
Já ok ég ætla að reyna að halda þessari síðu lifandi þar sem það er ansi margt að gerast í lífi okkur og hver veit nema að ykkur finnist gaman að fylgjast með :)

Ég vil fyrst biðja alla um að svara könnuninni sem er hér til vinstri á síðunni því við Semjon erum í mesta basli með að finna nöfn á hvolpana okkar sem við fáum afhenda um miðjan desember! Já það er satt við erum að fá okkur hvolpa. Fyrst átti þetta bara að vera HVOLPUR sem breyttist svo yfir í HVOLPA... :) Við duttum inn á þennan frábæra ræktanda í sumar sem er alveg stórkostleg í alla staði. Fyrst við fengum tækifæri til að kaupa tvo þá stukkum við á það. En já þannig að þetta verða fjörug jól hér hjá okkur Semjon.

Fyrir mánuði síðan skruppum við aðeins til Berlinar og það var alveg meiriháttar. Skítakuldi en ótrúlega gaman. Fékk loksins að sjá Berlinarvegginn og já ok ég hélt að þetta væri aðeins meira meistaraverk en þetta. Hverjum hefði dottið það í hug að þessi venjulegi veggur hefði haft svona mikil áhrif !!? Ég meina með góðu tilhlaupi er maður kominn hinumegin við vegginn.. Þetta er enginn Kínamúr get ég sko sagt :p

Okkur líkar annars alveg rosalega vel hér í Stavanger. Hér rignir reyndar alveg skuggalega mikið en í staðinn þá er mjög hlýtt og okkur líkar það nú alveg ágætlega. Kominn há vetur og varla þörf á vettlingum. Okkur líkar líka rosalega vel í vinnunum okkar. Semjon er að vinna á einn af bestu stöðum noregs og ég er að vinna á veitingastað sem er líka sushi staður og það er ótrúlega spennandi :) Svo er líka þessi veitingastaður heitasti bar bæjarins þannig að ég er auðvitað á rétta staðnum ;)

Jæja læt þetta duga í bili og sjáum hvort þessi síða nái að lifna við.
Kvittið endilega
Knús knús

FĆRSLA FRÁ STAVANGER

28. júlí 2009 klukkan 21:54

Jæja hér kemur það.... Fyrsta bloggið frá Stavanger eftir stórkostlegt ferðalag til Ástralíu og Indonesíu.

 

Jamms við erum komin heim og ég kalla núna Noreg heim þar sem ég veit ekki alveg hvenær ég ákveð að flytja til lands skuldanna og atvinnuleysis.

 

En já Ástralía var alveg meiriháttar og Indonesía engu síðri fyrir utan fátæktina auðvitað og öllu sem fylgir fátæku landi.

 

Við lentum í endalausum ævintýrum í Indonesíu bæði góðum og slæmum. Vorum stoppuð af lögreglunni tvisvar og í bæði skiptin náðum við að koma okkur undan greiðslu og dómskerfinu. Í fyrsta sinn sem við vorum stoppuð þá stungum við af og í seinna skiptið þá náði Semjon einhvernveginn að bilast við lögreglumanninn og sagði honum bara að við stæðum ekki í þessu lengur... Þeir gætu ekki bara stoppað okkur alla helvítis daga og heimtað pening!! Og lögreglumaðurinn var fljótur að bakka J Þeir eru skíthræddir við túristana haha  en já þetta land er einstaklega spillt og sérstaklega lögreglan. Þarna standa óeinkenndisklæddir lögreglumenn á götuhornum á næturnar og selja eiturlyf. Maður veit aldrei hver er lögregla og hver ekki. Svona taka þeir fólkið. Selja þeim og svo handtaka þeir fólkið. Frekar sniðugt samt en það var ekkert sérlega huggulegt að ganga um götur og heyra hvíslað að manni úr öllum áttum “marujana, hass, kokein....) maður bara Ehhh nei takk....

 

En annars þá er náttúran þarna alveg stórkostleg! Fólkið svo vinarlegt og af öllum vilja gerð. Alltaf til í að hjálpa og stundum ekki fyrir neinn pening haha og stundum heimtaði það pening fyrir að horfa á þig! Ég meina það er alveg í lagi að láta þau fá smá pening hér og þar en þegar þeir heimta pening fyrir EKKI NEITT þá bilaðist Drífa.. Tvisvar missti ég mig alveg og lét þau sko ekki hafa krónu! En það er önnu saga...

 

Mér er nú reyndar minnistæðast þegar ég steig á snák. Já við Semjon ákváðum að fara í fallegan göngutúr meðfram sjónum á smá bryggju og ég ákvað eins og svo oft áður að vera bara berfætt. Já þarna gengum við hægt og rólega að njóta náttúrunnar og hafsins þegar ég sé þykkan stóran snák uppí kant rétt hjá mér og við það flippa ég og stekk afturábak og auðvitað með þeim afleiðingum að ég stíg á þennan mjúka þykka snák!!!! Nei ég hélt ég yrði ekki eldri!!! Þegar ég var búin að jafna mig þá sá ég að þetta var bara einn snákur en köttaður í tvennt! En það var augljóst að hann var bara nýdauður því hann var fullur af kjöti og enn mjúkur... OHH þetta var ógeð!!!

 

Já hvað meira... Jú ormurinn í súpunni var líka nettur.. Það var nú alveg eitthvað til að laga matareytrunina og magavandamálin.. Kakkalakkarnir voru orðnir góðir vinir okkar.. Ekki nema svona 3-5 cm á lengd og hlupu allt of hratt! Við kynntumst alveg helling af fallega ógeðslegum dýrum sem lifðu á hótelherberginu og bara út um allt :o)

 

En við lifðum þetta allt af og skiluðum okkur til Stavanger 50 tímum síðar eftir að við lögðum af stað frá hótelinu okkar. Já akkurat 50 tíma tók ferðalagið og jú ég varð fárveik eftir ferðalagið! Lá heima undir sæng og var alveg meira en viku að ná mér. Þökkum fyrir að ég var ekki með svínaflensuna ;)

 

Hvað varðar Stavanger þá er bærinn alveg meiriháttar!! Við vorum svo einstaklega heppin að fá geggjaða íbúð nálægt miðbænum og eigandinn af íbúðinni er alveg frábær þannig að við kvörtum ekki. Við fórum strax í að leita af vinnu og fengum bæði helling af tilboðum. Ég fékk allar vinnurnar sem ég sótti um og helling af tilboðum þannig að þetta fór allt vel af stað hér hjá okkur. J

 

Við keyptum okkur fiskinn Rocky er hann í miklu uppáhaldi hjá okkur. Nú viljum við fá aðeins meiri aksjón og fengum leifi til að kaupa hund !!!! YEAHHH ég get ekki beðið. Þannig að það eru bara spennandi tímar framundan. Ég komst inn í skólann og ég er að fara til Íslands í heimsókn þannig að hér er allt í blóma.

 

Langaði bara rétt að henda inn smá færslu.. Planið er að halda þessari síðu gangandi ...

 

Þar til næst

Drifa

Atburđarteljari

GULLKORN VIKUNNAR

Control your mind!

There are no mistakes just lessons.

Hvolparnir okkar

Myndasíđur